Ég hef einhvern veginn alltaf upplifað mig sem rokkstjörnu. Það fer samt ansi lítið fyrir rokkstjörnuferli mínum. Hann er allavegana frekar dapurlegur.
Einu sinni var ég beðin um að vera í hljómsveit sem hét Blöðrukisi. Í henni voru Maggi trommari, Högni Egilsson og Þorsteinn Kári. Mér fannst það hrikalega asnalegt hljómsveitarnafn. Við spiluðum á einum tónleikum en það var heiftarlegur ágreiningur innan hljómsveitarinnar sem ekki tókst að vinna úr. Tja, eða aðallega milli mín og gítarleikarans sem þráaðist við að finna annað nafn (ég stakk upp á nafninu Byssupiss 2) og skipaði mér að fríkka mig fyrir tónleika.
Eftir stórkostlega frammistöðu sem íhlaupahljómborðsleikari á söngvakeppni framhaldsskólanna var ég viss um stöðu mína í hljómsveitinni Hjaltalín. Nokkrum vikum síðar sá ég auglýsta tónleika með Hjaltalín á auglýsingaplakati niðri í bæ. Þá samdi ég hljómfagra lagið með torræða nafninu: "Ég hata Hjaltalín".
Stuttu síðar var mér boðið í hljómsveit sem átti enn eftir að fá nafn. Ég stakk upp á nafninu Byssupiss 3. Svo mætti ég á æfingu og þótti sökka einstaklega feitt. Þá var ég rekin. Hljómsveitin var skírð Djöflarnir frá Keflavík.
Enn er þó ónefnd hljómsveitin sem á hug minn allan. Ég hef verið ótrú og daðrað við aðrar hljómsveitir sem hafa svo bara farið illa með mig. Byssupiss er hljómsveitin í lífi mínu. Að vísu takmarkast aðdáendahópurinn við ákveðin borð í Norðurkjallara Mh. Og ef ég gúgla hljómsveitinni koma upp háðsglósur um sveitina á bloggsíðum kunningja. Þar komum við enn að því hversu dapurlegur þessi rokkstjörnuferill minn ætlar að vera. En Byssupiss er þó altso alltaf til í að heita Byssupiss og spila góð lög eins og "Ég hata Hjaltalín". Hér er textinn:
Ég var hluti af Hjaltalín,
þessi saga er sagan mín.
Ég hef lifað þraut og pín,
djamma oft með kókaín.
Hjaltalín,
þeir eru svín,
þetta er ekkert grín.
Nei þessi skilaboð eru svo brýn,
eru svo brýn,
eru svo brýýýn.
Ég er hér og sólin skín,
þessi saga er sagan mín.
Ég er búin að drekka soldið vín,
verð trúbador þar til dagur dvín.

<< Home