Í gær fór ég út að skemmta mér. Mér var ekki hleypt inn á Ölstofunni. Ég þurfti að rökræða lengi við barþjóninn á Næsta bar til að vera hleypt inn. Ég þarf greinilega að útvega mér fölsuð skilríki. Er samt kannski á síðasta séns með það, verð tvítug eftir þrjá mánuði.
Svo var ég undir smásjá þjónanna allan tímann sem ég var inni á Alþjóðahúsinu sem hleyptu mér inn með því skilyrði að ég drykki ekkert áfengi. Þegar ég skrapp á klósettið settist einn þjónninn á borðið hjá félögum mínum. Hann sagði þeim að þetta með aldurinn væri bara tylliástæða til að banna mér að drekka. Hann sagði að síðast þegar ég var á Kúltúra hafi ég sagt "fuck you bitch" við einn barþjóninn þegar átti að reka mig út. Ég neita að trúa því. Hver segir "fuck you bitch", aðrir en fávitar?

<< Home