mánudagur, mars 13, 2006

MH - Skóli dauðans

Fréttapési í MH er greinilega álíka vafasamur fjölmiðill og DV. Fór í viðtal til þeirra og þeir sneru út úr því sem ég sagði eins og ég veit ekki hvað, það er svo mikið helvítis bull sem stendur þarna eins og það sé haft eftir mér. Ég hata, hata, hata Fréttapésa. Sem betur fer er honum bara dreift í 300 eintökum.

Muna: Bíta strákana í Fréttapésa á barkann.

Einhver mjög óprúttinn, sennilega Kári, læddist inn á msnið mitt á meðan ég var í tíma og spjallaði við þann sem ég var að spjalla við. Þegar ég kom til baka og leit á skjáinn hafði "ég" sagt: "Mér er svo illt í píkunni" við einhvern kunningja minn.

Muna: Eitra fyrir Kára í næsta matarboði Beneventum með laxerolíu.