Samkvæmt sálfræðiskýrslunni hennar Sigrúnar Þorsteins fyrir sálfræði 203 er fylgni á milli þess að vera góður í ensku og að vera heimskur. Þetta kemur mér ekki á óvart enda er ég hreint afburðagáfuð en þó mjög léleg í ensku. Mér gekk fjarskalega illa á enskuprófi um daginn en nú sýti ég það ekki lengur.
Næst þegar einhver segir eitthvað mjög heimskulegt ætla ég að svara: ,,Þú hlýtur að vera mjög góður í ensku".
Næst þegar einhver segir eitthvað mjög heimskulegt ætla ég að svara: ,,Þú hlýtur að vera mjög góður í ensku".

<< Home